Óttast hatursglæpi á EM: Gestgjafaþjóðirnar afhjúpaðar

Panorama skoðar ógnvænlegt umfang kynþáttaníðs í Úkraínu og Póllandi

Evrópumótið í knattspyrnu er handan við hornið en mótið verður haldið í Póllandi og Úkraínu. Sum þátttökulandanna hafa varað landa sína við því að ferðast á mótið og það ekki að ástæðulausu miðað við umfjöllun Panorama á BBC-sjónvarpsstöðinni.

Fréttamaður BBC eyddi mánuði í löndunum til þess að skoða fótboltamenninguna. Það sem hann komst að er sláandi.

Gyðingahatur, kynþáttaníð, ofbeldi og annað í þeim dúr viðgengst á knattspyrnuvöllum landanna án þess að knattspyrnusambönd landanna né UEFA taki alvarlega á málum.

Margir hafa gagnrýnt UEFA fyrir að halda mótið í þessum löndum á meðan ástandið í þeim er ekki betra en raun ber vitni.

Þær gagnrýnisraddir hafa ekki minnkað eftir þáttinn sem sjá má í heild sinni hér að ofan.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.