Barcelóna er Konungsbikarmeistari Spánar árið 2012 og þar með er fjórtándi titill liðsins undir stjórn Pep Guardiola í höfn. Hann hættir nú sem þjálfari liðsins.
Mættu Börsungar frískir til leiks gegn böskunum frá Bilbao, Athletic Bilbao, og gerðu út um leikinn á fyrstu 25 mínútum hans. Þá var staðan orðin 3-0 Barcelóna í vil og urðu það lokatölur leiksins. Pedro skoraði tvívegis og Leo Messi eitt.
Markar leikurinn tímamót hjá sigurvegurunum því þar með lauk tímabili Pep Guardiola með liðið en hann hefur verið afar farsæll þjálfari bæði með yngri lið félagsins og aðalliðið eftir að hann tók við því.
Við þjálfun liðsins tekur varaþjálfarinn Tito Vilanova. Ekki er við öðru að búast en sá fylgi forskrift forverans í hvívetna enda gefist vel þó þennan veturinn hafi erkifjendurnir úr Real Madrid unnið spænsku deildina.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013