Moyes vill Björn Bergmann

800 milljóna króna tilboð á borðinu

Enska úrvalsdeildarfélagið Everton hefur lagt fram 800 milljóna króna tilboð í markahrókinn Björn Bergmann Sigurðarson sem spilar með Lilleström í Noregi.

Óstaðfestar fregnir fyrr í dag hermdu að David Moyes, þjálfari Everton, ætti í viðræðum við forráðamenn Lilleström í Noregi með það í huga að kaupa Björn Bergmann sem farið hefur á kostum í norsku deildinni og skorað ein ellefu mörk í ellefu leikjum það sem af er.

Staðfest er á vefmiðli Telegraph að tilboðið sé raunverulegt og liggi þegar á borði forráðamanna Lilleström. Líklegt þykir að þar á bæ hinkri menn við því mun fleiri félagslið frá Englandi hafa lýst áhuga á Birni. Þar á meðal Wolves, Sunderland, Fulham og Reading.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.