Blanc hyggst prófa nýja leikmenn gegn Íslandi

Gefur minni spámönnum tækifærið

Laurent Blanc, landsliðsþjálfari Frakklands, segist ætla að gefa öðrum leikmönnum en venjulega tækifærið í æfingaleiknum gegn Íslandi á sunnudaginn kemur.

Glímir Blanc við töluverð meiðsli í þeim hóp sem hann nota á Evrópumeistaramótinu sem hefst í júní en leikurinn gegn Íslandi er einn af þremur æfingaleikjum sem Frakkland spilar áður en það mót hefst.

Af þeim leikmönnum sem til greina kemur að nota í byrjunarliðið á sunnudag nefnir Blanc nöfn eins og Hatem Ben Arfa, Olivier Giraud, Marvin Martin og Mathie Debuchy. Allt er það leikmenn sem Blanc hefur mikið álit á en hafa lítt fengið tækifæri með landsliðinu.

Frakkland hefur ekki tapað í átján landsleikjum í röð áður en kemur að leiknum á sunnudag sem fram fer í Valenciennes. Hann verður sýndur á Stöð 2 Sport.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.