Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn

Flott gengi á Evrópumótinu í Crossfit

Annie Mist Þórisdóttir heldur áfram að gera frábæra hluti í crossfit á erlendri grundu. Í dag bætti hún tveimur heimsmetum í sarpinn á fyrsta degi Evrópumótsins í crossfit.

Var fyrsti keppnisdagur af þremur alls í dag og vann Annie Mist bæði keppni í réttstöðulyftum og handstöðuarmbeygjum og setti heimsmet í báðum greinum.

Hún keppir í tveimur greinum á laugardag og tveimur til viðbótar á sunnudag en efstu þrír á mótinu fá farseðil á Heimsmeistaramótið í greininni sem fram fer í Bandaríkjunum í júlí.

Fylgjast má með Annie og öðrum íslenskum keppendum sem þátt taka í mótinu í Kaupmannahöfn á vef Crossfit Europe hér.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.