Forráðamenn Wigan hafa varað eigendur Liverpool við því að ráði þeir Roberto Martinez í starf þjálfara Liverpool þurfi þeir að greiða Wigan allt að 600 milljónum króna í bætur.
Staðfest er að bandarískir eigendur Liverpool hafa átt viðræður við Martinez síðustu daga og fjölmiðlar í Bretlandi telja hann líklegastan til að fylla skarð Kenny Dalglish sem látinn var fara í síðustu viku. Er hann þó ekki sá eini sem Bandaríkjamennirnir hafa augastað á og nöfn Fabio Capello og Andre Villas-Boas og Louis van Gaal verið nefnd oftar öðrum. Fullyrt er þó í Telegraph að Villas-Boas komi ekki lengur til greina en engar ástæður gefnar fyrir því.
Stutt er síðan Martinez framlengdi samning sinn hjá Wigan þar sem hann þykir hafa gert afar góða hluti með lítið fjármagn milli handanna. Dave Whelan, stjórnarformaður Wigan, metur þann samning á 606 milljónir króna og þá upphæð að lágmarki þurfi Liverpool að greiða fari svo að þeir ráði Martinez í stöðu þjálfara.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013