Loks töpuðu Skagamenn stigum

Flest annað eftir bókinni í Pepsi deildinni

Skagamenn töpuðu sínum fyrstu stigum í Pepsi deild karla í kvöld þegar liðið gerði jafntefli við Stjörnuna í Garðabæ. Fram lagði Breiðablik á útivelli en aðrir leikir fóru nokkuð eftir bókinni.

Þó Stjarnan hafi leitt leikinn gegn toppliði ÍA nánast frá upphafi gefur það nokkuð ranga mynd af leiknum en það voru gestirnir sem voru sókndjarfari á löngum köflum í leiknum. Þó án þess að setja punkt yfir með marki og endaði leikurinn í 1-1 jafntefli þegar lokaflautið gall í eyrum leikmanna.

ÍA heldur engu að síður efsta sætinu í Pepsi deild karla með þrettán stig eftir fimm umferðir.

Aðrir leikir kvöldsins fóru tiltölulega eftir bókinni. Selfyssingar litu út fyrir að vera að vinna góðan 3-1 sigur á Grindvíkingum þegar fimm mínútur voru til leiksloka en gestirnir hættu aldrei baráttunni og uppskáru 3-3 jafntefli áður en yfir lauk. Jöfnunarmarkið kom í uppbótartíma.

Fylkismenn unnu sannfærandi sigur á Val á heimavelli 3-1. Breiðablik lá á heimavelli 0-2 gegn Fram sem virðist vera að koma til eftir hörmungar byrjun. Þá lögðu Keflvíkingar ÍBV 1-0.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.