Puyol og Villa úr myndinni

Ekki með Spánverjum á EM

Hvorki David Villa né Carles Puyol keppa með spænska landsliðinu á Evrópumótinu sem hefst eftir þrjár vikur.

Villa hefur enn ekki náð sér vel eftir að hafa fótbrotnað í leik með Barcelona fyrir síðustu áramót. Hefur hann þegar lýst yfir að hann keppi ekki í sumar. Annar kappi frá Barcelóna, varnarjaxlinn Carles Puyol, er einnig afar tæpur en hann er að jafna sig eftir aðgerða á hné og afar ólíklegt að hann sé klár í slaginn með landsliðinu innan tíðar.

Fyrsti leikur Spánar á EM er þann 10. júní gegn Ítalíu og leikir gegn Írlandi og Króatíu fylgja í kjölfarið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.