Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
18:31 › 23. maí 2012
„Ég er leikmaður Manchester City og verð það áfram,“ segir sóknarmaðurinn Mario Balotelli en orðrómur þess efnis að hann fari aftur til Ítalíu á næstu leiktíð í skiptidíl er þrálátur.
Balotelli þykir óstýrilátur sem leikmaður en hann kom til City frá Inter Milan árið 2010 og er samningsbundinn til ársins 2015. Fullyrðir hann að hann sé ekkert á förum neitt á næstunni og spili í treyju City á næstu leiktíð.
Hann viðurkennir þó að hafa ekki spilað eins og hann á best að sér í vetur. „Við vorum besta liðið og áttum titilinn skilinn. Hvað mig sjálfan varðar þá gef ég mér miðlungs einkunn. Ég er ungur enn og geri mistök.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013