„Held ég sé betri en Messi“

Cristiano Ronaldo óvenju hógvær

„Þú berð ekki saman Ferrari og Porsche vegna þess að vélar þeirra eru mismunandi. Slíkt verður ekki borið saman. Sama gildir um mig og Messi.“

Á þennan hátt svaraði Cristiano Ronaldo spurningum fréttamanns CNN sem vildi vita hvort hann teldi sig betri leikmann en Leo Messi hjá Barcelona.

Ronaldo reyndist óvenju hógvær í viðtalinu en hann er frægari fyrir að gera mikið úr sjálfum sér í viðtölum en hitt. Lét hann þau orð falla að bæði hann og Messi gerðu sitt besta fyrir sín félög og báðir væru kannski meira á tánum vegna hvors annars.

„Ég kann ekki við að vera sífellt borinn saman við aðra knattspyrnumenn. Sumir segja að ég sé betri, aðrir segja hann betri. Á endanum tekur fólk sína eigin afstöðu en í dag held ég að ég sé betri.“

Ronaldo skoraði 46 mörk í spænsku deildarkeppninni í vetur en Messi bætti um betur og endaði með 50 mörk alls.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.