AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni

Halda áfram í undanúrslit

Íslendingaliðið AG Kaupmannahöfn kemst í undanúrslit meistaradeildar Evrópu í handknattleik eftir leik gegn Barcelona í dag. Liðið sló þá heimamenn út úr meistaradeild þrátt fyrir tap gegn þeim 36-33 í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum í kvöld. AG vann fyrri leikinn 29-23 og því viðureignina, samanlagt 62-59.

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur hjá AG með átta mörk. Ólafur Stefánsson skoraði sjö, Snorri Steinn Guðjónsson fjögur og Arnór Atlason þrjú mörk.

Siarhei Rutenka var markahæstur heimamanna með níu mörk.

AG hefur því tryggt sér sæti í undanúrslitunum. Undanúrslitin og úrslit fara fram í Köln helgina 26-27. maí.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.