ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Lagerbäck: Þurfti alltaf að vera á tánum í kringum Zlatan

Landsliðsþjálfarinn sýnir á sér nýjar hliðar
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:40 › 23. febrúar 2012
Lagerbäck finnst hann vera of þungur.

Lagerbäck finnst hann vera of þungur. Mynd Reuters

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, er í stóru viðtali í nýjasta hefti Mannlífs þar sem hann sýnir meðal á sér nýjar hliðar. Hann viðurkennir að honum finnist of gott að borða og sé litblindur.

Hann ræðir þó einnig ítarlega um fótboltann, bæði framtíðina með Íslandi og fortíðina sem landsliðsþjálfari Svía. Lagerbäck kom Svíum fimm sinnum á stórmót.

Samband Lagerbäck og skærustu stjörnu Svía, Zlatan Ibrahimovic, var erfitt en Zlatan hætti í landsliðinu í smá tíma, meðal annars vegna deilna við Lagerbäck.

„Við bárum gríðarlega virðingu fyrir hvorum öðrum,“ segir Lagerbäck um Zlatan í Mannlífi. „Hann er mjög sérstakur persónuleiki en um leið sterkur, bæði í klefanum og innan hópsins. Maður þurfti alltaf að vera á tánum í kringum hann.“

Lagerbäck ræðir þó meira en fótboltann og er spurður um þyngdina. „Úff, hún er allt of mikil. 105 kíló,“ segir Svíinn. Þyngdin tengist meðal annars tveimur af leyndarmálunum sem hann gefur upp um sig.

„Ég er náttúrlega litblindur og kann allt of vel við að borða. Borða of mikið,“ segir Lars Lagerbäck sem stýrir Íslandi í sínum fyrsta landsleik gegn Japan í fyrramálið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?