Íslenska landsliðið í fótbolta mætir Japan í æfingaleik í fyrramálið en það verður fyrsti leikur Svíans Lars Lagerbäck með íslenska liðið.
Það fer vel um strákana í Japan en þeir hafa þó verið nokkuð óheppnir með veður. Rignt hefur stanslaust síðan íslensku strákarnir mættu til leiks.
Leikurinn er ekki á alþjóðlegum leikdegi og notast Lagerbäck því mest megnis við leikmenn sem spila hér heima og í Skandinavíu.
Þessi fyrsti leikur Lagerbäck verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í fyrramálið kl. 10.20.
Á Facebook-síðu knattspyrnusambands Íslands má sjá enn fleiri myndir af undirbúningi strákanna í Japan.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 












Moyes vill Björn Bergmann
„Þessi titill fyrir þig Pep“
Blanc hyggst prófa nýja leikmenn gegn Íslandi
Martinez verður Liverpool dýr
Loks töpuðu Skagamenn stigum
