Eftir sautján mánaða hlé frá keppni í blönduðum bardagalistum, MMA, snýr Gunnar Nelson, færasti bardagaíþróttamaður landsins, aftur í búrið á laugardaginn. Hann mætir þá Úkraínumanninum Alexander Butenko í aðalbardaga kvöldsins á Cage Contender 12 sem fram fer í Dyflinni á Írlandi.
Íslendingar munu þó eiga annan keppanda á kvöldina því í næst stærsta bardaga kvöldsins mætir ofurmennið Árni „úr járni“ Ísaksson Íranum Richard Gorey. Kvöldið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og er mikil spenna farin að myndast í heimi bardagaíþrótta á Íslandi. Sportbarir eru byrjaðir að auglýsa kvöldið og mikil stemning að myndast. Það er mikið undir hjá íslensku MMA á laugardaginn.
Mótherjinn aldrei verið stöðvaður
Gunnar Nelson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í endurkomu sinni. Mótherji hans, Alexander Butenko, kallaður „járnhrammurinn“, er ein bjartasta von Austurblokkarinnar í MMA. Hann hefur unnið tólf bardaga og tapað fjórum á sínum atvinnumanna ferli, þar af unnið tíu af síðustu ellefu. Hann er því sjóðheitur. Butenko æfir með Fedor Emelianenko sem er einhver besti MMA-bardagamaður í heimi.
Það sem meira er hefur Butenko unnið tíu af tólf bardögum sínum með því að fá andstæðinginn til að gefast upp (e. Submission). Það samsvarar 83 prósenta „submission rate“ sem telst ansi gott. „Það er eiginlega rugl,“ segir Haraldur Dean Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars í samtali við DV.
Haraldur segir Gunnar spenntan fyrir bardaganum og verður áhugavert að sjá hvar Gunnar stendur eftir 17 mánuði frá búrinu. Ljóst er að sigur á svona sterkum andstæðing, hvað á með hengingu eins og í síðustu bardögum Gunnars, myndi gera hann að enn stærra nafni en Butenko hefur aldrei verið stöðvaður í búrinu. Einu töp hans hafa komið eftir ákvarðanir dómara.
Passar vigtina
Gunnar hefur æft úti í Írlandi undanfarnar vikur ásamt Árna „úr járni“ Ísakssyni en fyrir bardaga æfa þeir stíft hjá þjálfara sínum, John Kavanagh. Það var gott hljóðið í Árna þegar DV heyrði í honum en járnmanninum finnst ekkert skemmtilegra en að berjast í búrinu. „Ég er alltaf glaður í hjartanu þegar ég fæ bardaga,“ segir Árni. „Þessi bardagi leggst vel í mig. Ég hef æft rosalega vel og er í mínu besta formi. Ég er tilbúinn.“
Þessa síðustu viku fyrir bardagann æfa strákarnir ekki stíft, bara einu sinni á dag og þá rólega. „Nú er maður bara að passa vigtina. Maður æfir rétt til þess að svitna aðeins,“ segir Árni. Erfiðlega hefur gengið að fá bardaga fyrir Árna en Richard Gorey var fjórði kostur.
„Hann lítur út fyrir að vera mjög sterkur og hefur góðan bakgrunn í júdó. Þetta er mjög sterkur andstæðingur en ég tel mig betri MMA-bardagamann þegar á heildina er litið. Ég er í mínu besta formi í langan tíma og hef því ekki miklar áhyggjur,“ segir Árni.
Tapaði síðast
Eftir að Árni steig upp úr mjög alvarlegum hnémeiðslum hafði honum gengið vel í endurkomunni. Hann vann þrjá stóra bardaga í röð, alla með uppgjafartaki á andstæðinginn. Hann tók þó bardaga með skömmum fyrirvara í september á síðasta ári og tapaði þar á tæknilegu rothöggi gegn Frakkanum Gael Grimaud. Árni segist þó hafa lært af þeim bardaga.
„Fyrir þann bardaga átti ég verstu æfingavikur lífs míns. Það var mikið um meiðsli og svona. Ég vil samt ekkert vera að afsaka mig. Ég lærði mikið af þessum bardaga og þroskaðist. Þetta er kannski klisja en ég er ánægður með að hafa tapað. Það neyddi mig til að hugsa minn gang og nú er ég betri bardagamaður fyrir vikið,“ segir Árni sem er fullmeðvitaður þess hvað þetta kvöld getur verið stórt fyrir MMA á Íslandi, sér í lagi takist þeim báðum að vinna.
„Ég get alveg viðurkennt að ég er smá stressaður,“ segir hann.
Síðast þegar Gunnar keppti hengdi hann andstæðing sinn standandi:
Tap Árna gegn Gael Grimaud í Jórdaníu:



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
