Að halda vetrarólympíuleikana í Denver árið 2022 mun kostar 1,5 milljarða dollara, eða því sem nemur 185 milljörðum íslenskra króna. Þetta kemur fram í útreikningum íþróttamarkaðsfyrirtækis í Colorado-fylki í Bandaríkjunum sem borgaryfirvöld í Denver létu gera.
Denver íhugar nú að sækjast eftir næstu lausu vetrarólympíuleikum, árið 2022, en mestan pening til verkefnisins þyrfti sérstök nefnd að sækja til einkaaðila.
Það var markaðsfyrirtækið Alem International Management Inc. sem tók saman kostnaðinn og reiknaði þar verðbólguna frá því síðast voru haldnir vetrarólympíuleikar í Bandaríkjunum en það var í Salt Lake City árið 2002. Þeir leikar kostuðu 1,5 milljarða dollara en að sama skapi kostuðu leikarnir í Vancouver á síðasta ári 1,86 milljarða dollara.
Nefndin í Denver sem hefur verið sett á laggirnar til að athuga hvort borgin eigi að bjóða sig fram til að halda vetrarólympíuleikana árið 2022 mun nú hafa 90 daga til að vega og meta möguleikana.
Denver vann boðið um að halda leikana árið 1976 en borgarbúar kusu síðan gegn því að eyða skattpeningum sínum í þá og voru leikarnir haldnir það ár í Innsbruck í Austurríki.
Einn og hálfur milljarður dollara en auðvitað gríðarlega mikill peningur en þessi upphæð bliknar í samanburði við fjárhagsáætlun Breta fyrir sumarleikana í ár.
Hafa þeir reiknað með að ólympíuleikarnir í ár muni kosta 14,5 milljarða dollara, eða nær tífalt það sem Denver mun þurfa borga sæki borgin um og vinni.
Bandaríska ólympíunefndin hefur ekki enn ákveðið hvort hún ætli að mæla með bandarískri borg fyrir vetrarleikana 2022 en nægur tími er til stefnu því staðsetning verður ekki valin fyrir 2015.
Næstu vetrarólympíuleikar fara fram í Sochi í Rússlandi árið 2014 og árið 2018 verða þeir í Pyeongchang í Suður-Kóreu.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
