Meistarar framtíðarinnar, á aldrinum 6 til 11 ára, keppa um Íslandsmeistaratitil barna á stórmóti í Rimaskóla á morgun klukkan 11. Ólafur Ragnar Grímsson forseti er heiðursgestur mótsins, flytur setningarávarp og leikur fyrsta leikinn á Íslandsmóti barnanna.
Mikill skákáhugi er meðal ungu kynslóðarinnar og fjölmörg bráðefnileg börn hafa komið fram á sjónarsviðið á síðustu árum. Langflest efnilegustu skákbörn landsins eru skráð til leiks á Íslandsmótinu. Sigurvegarinn fær sæmdarheitið Íslandsmeistari barna 2012, ferð á Norðurlandamótið í skólaskák í Finnlandi í febrúar og inneignarkort í Bónus. Verðlaun eru veitt fyrir bestan árangur í fimm árgöngum og munu því margir bikarar fara á loft í Rimaskóla.
Tefldar eru 9 umferðir á Íslandsmótinu. Eftir 5 umferðir munu 15-20 börn komast áfram í úrslit, en aðrir keppendur fá að spreyta sig í fjöltefli gegn stórmeisturunum Helga Ólafssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands, og Þresti Þórhallssyni.
Fyrst var keppt um Íslandsmeistaratitil barna árið 1994. Meðal fyrri sigurvegara eru titilhafarnir Hjörvar Steinn Grétarsson, Guðmundur Kjartansson og Dagur Arngrímsson.
Íslandsmeistarinn frá 1999, Víðir Smári Petersen, er sérstakur gestur í Rimaskóla. Í september 2010 varð Víðir Smári yngstur allra til að taka sæti á Alþingi, aðeins 21 árs að aldri. Hann mun tefla sýningareinvígi við Dawid Kolka, sem varð Íslandsmeistari barna 2011.
Íslandsmót barna í Rimaskóla hefst klukkan 11 á laugardag og stendur til 15.30. Áhorfendur eru hjartanlega velkomnir. Veitingasala er á staðnum og góð aðstaða fyrir keppendur og fylgdarlið. Börn í 1. til 5. bekk geta ennþá skráð sig á skak.is.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
