ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Heiðar Helguson íþróttamaður ársins

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:47 › 5. janúar 2012
Heiðar Helguson.

Heiðar Helguson.

Knattspyrnumaðurinn Heiðar Helguson er íþróttamaður ársins 2011. Tilkynnt var um þetta í kvöld en íþróttamann ársins útnefna Samtök íþróttafréttamanna. Heiðar hlaut 229 stig í kjörinu en næst á eftir honum var spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir með 199 stig. Í þriðja sæti varð körfuknattleiksmaðurinn Jakob Örn Sigurðsson með 161 stig.

Heiðar hefur aldrei áður verið á meðal tíu efstu í kjörinu en þetta var í 56. sinn sem Samtök íþróttafréttamanna velja íþróttamann ársins. Heiðar er 34 ára gamalla og leikur með enska úrvalsdeildarliðinu Queens Park Rangers. Hann er markahæsti leikmaður liðsins á yfirstandandi tímabili og lék hann stórt hlutverk með liðinu þegar það komst upp í úrvalsdeildina í fyrra.

Hér má sjá hvernig atkvæðin dreifðust:

1. Heiðar Helguson knattspyrna 229 stig
2. Ásdís Hjálmsdóttir frjálsíþróttir 199
3. Jakob Örn Sigurðarson körfubolti 161
4. Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrna 145
5. Kolbeinn Sigþórsson knattspyrna 137
6. Þóra B. Helgadóttir knattspyrna 134
7. Aron Pálmarsson handbolti 109
8. Kári Steinn Karlsson frjálsíþróttir 79
9. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir handbolti 74
10. Ólafur Björn Loftsson golf 65

11. Þormóður Árni Jónsson júdó 52
12. Björgvin Páll Gústavsson handbolti 34
13. Arnór Atlason handbolti 28
14. Hafþór Harðarson keila 27
15. Hrafnhildur Ósk Skúladóttir handbolti 21
16.-17. Snorri Steinn Guðjónsson handbolti 20
16.-17. Thelma Rut Hermannsdóttir fimleikar 20
18. Eygló Ósk Gústafsdóttir sund 15
19. Alexander Petersson handbolti 10
20.-22. Hlynur Bæringsson körfubolti 6
20.-22. Jakob Jóhann Sveinsson sund 6
20.-22. Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrna 6
23. Jón Margeir Sverrisson íþróttir fatlaðra 5
24.-26. Annie Mist Þórisdóttir lyftingar 4
24.-26. Ragna Ingólfsdóttir badminton 4
24.-26. Karen Axelsdóttir þríþraut 4
27.-29. Erla Dögg Haraldsdóttir sund 3
27.-29. Björgvin Björgvinsson skíði 3
27.-29. Aðalheiður Rósa Harðardóttir karate 3
30. Karen Knútsdóttir handbolti 2
31. Jóhann Skúlason hestaíþróttir 1



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?