ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Eiginkona Speeds yfirheyrð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:14 › 30. janúar 2012

Louise Speed verður yfirheyrð vegna rannsóknar á dauða knattspyrnumannsins Gary Speed. Gary fannst látinn á heimili sínu í fyrra og er talið að hann hafi svipt sig lífi. Eiginkona hans, Louise, kom að líki hans á heimili þeirra í nóvember síðastliðnum en hann hafði hengt sig.

Speed var tveggja barna faðir en á ferli sínum lék hann með Sheffield United, Everton, Newcastle, Leeds og Bolton.
Lögreglan hefur gefið það út að ekkert bendi til þess að dauða Speeds hafi borið að með saknæmum hætti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?