Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Króatía lagði Spán að velli, 31-27, í leik liðanna um þriðja sætið á EM í handbolta sem klárast í Serbíu í dag. Króatar voru mun betri allan leikinn og unnu sanngjarnan sigur.
Stórskyttan Blazenko Lackovic var markahæstur Króata með átta mörk og hornamaðurinn Ivan Cupic skoraði sjö. Hjá Spánverjum var Daniel Sarimiento markahæstur með sjö mörk.
Þetta er þriðja Evrópumótið í röð sem Króatía vinnur til verðlauna en Króatar hafa endaði í öðru sæti á síðustu tveimur mótum, í Austurríki fyrir tveimur árum og í Noregi 2008.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
