Fastlega má búast við því að strákarnir okkar verði mættir á enn eitt stórmótið í janúar á næsta ári þegar HM fer fram á Spáni. Dregið var í undankeppni heimsmeistaramótsins í dag og fékk Ísland þar algjöran draumadrátt.
Til þess að komast á HM á Spáni á næsta ári þarf Ísland að leggja Holland að velli í tveimur leikjum, heima og að heiman. Þarf því ansi mikið að gerast eigi Íslendingar ekki að komast til Spánar.
Ísland var þriðja síðasta landið sem dregið var upp úr hattinum af þeim þjóðum sem voru eftir í fyrsta styrkleikaflokki en þá voru Hollendingar, Bosníumenn og Svartfellingar eftir í pottinum.
Miðað við liðin sem voru í pottinum hefði Ísland getað fengið mun erfiðari leik en drátturinn í heild sinni fór svona:
Litháen - Pólland
Rússland - Tékkland
Slóvenía - Portúgal
Slóvakía - Hvíta-Rússland
Makdedónía - Austurríki
Ungverjaland - Noregur
Þýskaland - Bosnía
Ísland - Holland
Svíþjóð - Svartfjalland



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
