ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Danir mæta Serbum

Íslendingar treysta á Danina
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:38 › 29. janúar 2012
Úr leik Íslendinga gegn Slóvenum.

Úr leik Íslendinga gegn Slóvenum. reuters

Flestir Íslendingar munu styðja Dani í úrslitaleik Evrópumótsins í handbolta í dag enda yki sigur Dana líkur Íslands á sæti á Ólympíuleikunum í London.

Ef Danirnir sigra Serba lenda Íslendingar í tiltölulega léttari riðli í undankeppni fyrir Ólympíuleikana. Þá færi Ísland í riðil með Japan, Króatíu og Síle en tvær efstu þjóðirnar í riðlinum tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum.

Ef Serbar hafa sigur af hólmi lenda Íslendingar í riðli með Spáni, Slóveníu og Brasilíu. Slóvenar stóðu sig mætavel á Evrópumótinu, sigruðu Íslendingaa og lentu í sjötta sæti.

Úrslitaleikur Dana og Serba hefst klukkan 16 í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?