Danmörk eru Evrópumeistari í handbolta eftir sigur á Serbíu, 21-19, í spennandi úrslitaleik. Þetta er í annað skiptið sem Danir verða Evrópumeistarar.
Afskaplega lítið var skorað í leiknum en markverðir liðanna, Darko Stanic hjá Serbum og sérstaklega Nicklas Landin hjá Dönum, fóru hreinlega á kostum.
Stanic varði 42 prósent þeirra skota sem komu á serbenska markið en Landin varði 54 prósent skota Serbanna. Gjörsamlega frábær frammistaða.
Danir höfðu yfirhöndina allan tímann og unnu sanngjarnan sigur. Stórskyttan Mikkel Hansen var markahæstur Dana með níu mörk og komu mörg þeirra á ögurstundum. Rajko Prodanovic var markahæstur Serba með fjögur mörk.
Danir hafa nú unnið til verðlauna á fimm af síðustu sex Evrópumótum. Þeir Þeir urðu í þriðja sæti þrjú mót í röð frá 2002-2006 en urðu Evrópumeistarar í Noregi árið 2008 og nú aftur 2012 í Serbíu.
Við Íslendingar þökkum Dönum kærlega fyrir að hafa unnið leikinn því þetta þýðir að Ísland fær mun léttari riðil í forkeppni Ólympíuleikana. Mun Ísland þar mæta Króatíu, Japan og Chile en tvö lið komast til Lundúna.
Ekki slæmur dagur fyrir Ísland því fyrr í dag dróst Ísland gegn Hollandi í umspilsleikjum fyrir HM 2013 á Spáni þannig það stefnir allt í tvö stórmót til viðbótar hjá strákunum okkar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
