ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Upphitun fyrir stórleik Liverpool og Man Utd

Líklegt að allt verði vitlaust þótt stjórarnir kalli eftir ró
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:26 › 28. janúar 2012
Ferguson og Dalglish mætast. Skoskir stjórar stýra stórliðum Liverpool og Man Utd í risaslag í enska bikarnum í dag.

Ferguson og Dalglish mætast. Skoskir stjórar stýra stórliðum Liverpool og Man Utd í risaslag í enska bikarnum í dag. Mynd: Reuters

  • Hiti í mönnum. Evra gæti leikið í dag en Suarez er enn í banni eftir þessi viðskipti þeirra í október.

    Hiti í mönnum. Evra gæti leikið í dag en Suarez er enn í banni eftir þessi viðskipti þeirra í október.Mynd: Reuters

Í hádeginu í dag mætast stórliðin Liverpool og Manchester United í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar. Þetta er fyrsta viðureign liðanna síðan Luis Suarez, framherji Liverpool, var dæmdur í 8 leikja bann fyrir að vera með kynþáttaníð í garð Patrice Evra varnarmanns United í október síðastliðnum.

Í ljósi þessa hitamáls má búast við að áhorfendum og leikmönnum verði heitt í hamsi en stjórar beggja liða, þeir Alex Ferguson og Kenny Dalglish hafa biðlað til allra að halda ró sinni.

Suarez er enn að taka út leikbann sitt en Patrice Evra gæti þurft að spila leikinn enda meiðslavandræði United talsverð.
Hjá United eru þeir Phil Jones, Nani og Rio Ferdinand tæpir fyrir leikinn en Ashley Young, Tom Cleverley, Nemanja Vidic og Darren Fletcher eru einnig frá vegna langtímameiðsla og sá síðastnefndi vegna veikinda.

Dalglish vonast til að geta kallað til Jay Spearing sem misst hefur af síðustu tveimur vikum vegna meiðsla.

Leikurinn í dag verður sá 13. milli liðanna í hinni virtu FA-bikarkeppni og er þetta að auki annað tímabilið í röð sem liðin mætast í keppninni, í fyrra í 3. umferð.

United hefur unnið ensku bikarkeppninni 11 sinnum og eru að reyna að komast í fimmtu umferð keppninnar í níunda skiptið á síðustu tíu leiktíðum. Það verður þó erfitt verkefni þar sem þeir hafa ekki unnið á Anfield síðan 2007.

United hefur hins vegar unnið 9 af síðustu 12 viðureignum liðanna í þessari elstu bikarkeppni veraldar.

Liverpool er ósigrað á Anfield á þessu tímabili eftir að hafa unnið fimm og gert átta jafntefli. Sigurinn gegn Oldham Athletic í 3. umferð bikarkeppninnar var þó þeirra eini sigur á heimavelli það sem af er árinu 2012.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?