Anton Ferdinand. Fékk hótun í pósti fyrir leik QPR og Chelsea sem hófst fyrir nokkrum mínútum. Mynd: Reuters
Anton Ferdinand, varnarmaður og liðsfélagi Heiðars Helgusonar hjá QPR, fékk byssukúlu senda með pósti fyrir leik liðsins gegn Chelsea í ensku bikarkeppninni í dag. Öryggisgæsla fyrir leikinn var hert og þurftu áhorfendur að gangast undir ítarlega öryggisleit áður en þeim var hleypt inn á leikvanginn.
Eins og margir vita þá var John Terry, fyrirliði Chelsea, ákærður fyrir kynþáttaníð í garð Ferdinand í leik liðanna í október síðastliðnum. Eru þeir tveir því í svipaðri stöðu og Patrice Evra og Luis Suarez fyrir utan það að bæði Terry og Ferdinand eru í byrjunarliðum sinna félaga í leiknum sem nú var að hefjast.
Þá gerðist sá fáheyrði atburður í upphafi leiks að ákveðið var að leikmenn myndu ekki heilsast með handabandi áður en flautað var til leiks. Var það vafalaust gert til að vernda Terry og Ferdinand en máli þeirra er ekki lokið.
Lögreglan í London rannsakar nú byssukúluumslagið sem barst á æfingasvæði QPR, stílað á Ferdinand.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Moyes vill Björn Bergmann
„Þessi titill fyrir þig Pep“
Blanc hyggst prófa nýja leikmenn gegn Íslandi
Martinez verður Liverpool dýr
Loks töpuðu Skagamenn stigum
