Þeir sem fylgjast með Afríkukeppninni í knattspyrnu sem nú fer fram Gabon og Miðbaugs-Gíneu urðu vitni að einhverjum svívirðilegasta leikaraskap sögunnar þegar Miðbaugs-Gíneumenn léku gegn Senegölum í gær.
Keppnin hefur farið vel fram en Miðbaugs-Gíneu tókst að tryggja sig áfram í keppninni með dramatískum 2-1 sigri í leiknum í gær þar sem sigurmarkið kom á 96. mínútu.
Nokkrum mínútum áður hafði hins vegar miðjumaður Miðbaugs-Gíneu Ekanga Amia stokkið upp í tæklingu sem leit ekkert sérlega vel út við fyrstu sýn.
Amia sakaði hins vegar ekki en það eru viðbrögð hans eftir að ekkert var dæmt sem hafa vakið viðbjóðshroll. Amia sest upp, lítur í kringum sig og veltist síðan um á vellinum eins og einhver hafi skotið hann í fótlegginn.
Eins og sjá á myndbandinu hér fyrir ofan geta allir verið sammála um að svona nokkuð á ekki að sjást á knattspyrnuvellinum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Moyes vill Björn Bergmann
„Þessi titill fyrir þig Pep“
Blanc hyggst prófa nýja leikmenn gegn Íslandi
Martinez verður Liverpool dýr
Loks töpuðu Skagamenn stigum
