ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Redknapp um skattsvik: „Ég er rosalega óskipulagður“

Segir bókarann stjórna lífi sínu
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:15 › 26. janúar 2012

Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp sagði við yfirheyrslu lögreglu að hann væri afar óskipulagður. Lögreglan yfirheyrði hann vegna meintra skattsvika en upptakan af yfirheyrslunni var leikinn við réttarhald yfir honum í hæstarétti í Southwark, Englandi. Redknapp var yfirheyrður í maí árið 2008 af lögreglunni í London.

Á vef bresku fréttastofunnar Sky kemur fram að Redknapp hafi sagt við lögreglu að bókarinn hans stjórni lífi hans. „Ég hef ekki séð launamiða í tíu ár. Ég sé ekki bankaupplýsingar. Ég kann ekki að skrifa. Ég er rosalega óskipulagður,“ sagði Redknapp.
„Ég kann ekki að senda tölvupósta og ekki heldur smáskilaboð. Ég hef aldrei skrifað bréf á minni ævi. Ég skrifa eins og tveggja ára barn og kann ekki að stafsetja.“

Redknapp er knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham Hotspur. Hann sagði lögreglunni frá því að aflandsreikningur með 189 þúsund pundum væri hans hluti af sölu Portsmouth á sóknarmanninum Peter Crouch til Aston Villa.
Greiðsluna fékk Redknapp sem yfirmaður knattspyrnumála og knattspyrnustjóri Portsmouth en hann er sakaður um að greiða ekki skatt af þessum greiðslum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?