ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Ótrúlegt sjálfsmark í kvennabolta

Svipað markinu sem Paul Robinson fékk á sig
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:33 › 26. janúar 2012

Þó ekki hafi farið mikið fyrir forkeppni Ólympíuleikanna í knattspyrnu kvenna var skorað hreint ótrúlegt sjálfsmark þar um daginn.

Kanada fór létt með að vinna Kostaríku í leik liðanna á þriðjudaginn, 5-1, en þar varð varnarmaður Kostaríkukvenna fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Þó markið skrifist á varnarmanninn Marianne Ugalde verður markvörðurinn Julieth Arias að taka mesta sökina á sig eins og sést í myndbandinu.

Sjálfsmarkið er ekki ólíkt því sem Paul Robinson fékk á sig í enska landsliðsmarkinu þegar hann hitti ekki boltann eftir sendingu Gary Neville til baka.

Neville og Robinson gegn Króatíu:



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?