ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Vildi ekki mæta í Hvíta húsið

Mótmælti afskiptum Bandaríkjastjórnar
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:48 › 25. janúar 2012
Tim Thomas nýtti rétt sinn sem frjáls einstaklingur og mætti ekki.

Tim Thomas nýtti rétt sinn sem frjáls einstaklingur og mætti ekki. Mynd Reuters

Ríkjandi meistarar í NHL-deildinni í íshokkí, Boston Bruins, mættu á mánudaginn í Hvíta húsið til að heilsa upp á Barack Obama, Bandaríkjaforseta. Þess konar heimsóknir eru siður í Bandaríkjunum en meistaralið koma ávallt við í Hvíta húsinu, eru heiðruð fyrir árangur sinn og fá hópmynd með forsetanum.

Aðeins tveir Bandaríkjamenn eru á mála hjá Bruins en annar þeirra, markvörðurinn Tim Thomas, kaus að mæta ekki í heimsóknina. Thomas var valinn besti markvörður NHL-deildarinnar í fyrra og kosinn verðmætasti leikmaður úrslitarimmunnar þar sem Bruins höfðu betur gegn Vancouver Canauks í sjö leikjum.

Hann útskýrði ákvörðun sína í yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni. „Mér finnst Bandaríkjastjórn hafa tekið sér of mikil völd og ógna nú réttindum, frelsi og eigum fólksins. Þetta er gert á öllum stigum kerfisins. Þetta er gert þvert á það sem stendur í stjórnarskránni og framtíðarsýn forfeðra okkar á stjórn landsins.“

„Það er vegna þess sem ég nýti minn rétt sem frjáls borgari til að mæta ekki í Hvíta húsið. Þetta snýst ekki um pólitík því að mínu mati eru báðir flokkar sekir um það ástand sem ríkir í þessu landi. Þetta var einfaldlega ákvörðun sem ég tók sem einstaklingur!“ skrifaði Thomas.

Thomas hefur hvergi slegið af á yfirstandandi keppnistímabili og heldur áfram að vera einn albesti markvörður deildarinnar. Saga hans er nokkuð merkileg en hann fékk ekki almennilegt tækifæri í NHL fyrr en Boston vantaði sárlega markvörð fyrir þremur árum. Fram að því var búið að afskrifa Thomas sem flakkaði á milli liða í Skandinavíu og spilaði þar bæði í Svíþjóð og Finnlandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?