ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Skákdagur Íslands á morgun

Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
10:07 › 25. janúar 2012
Skákdagurinn verður á morgun, fimmtudag

Skákdagurinn verður á morgun, fimmtudag Mynd: Wikipedia

Skákdagur Íslands verður haldinn í fyrsta sinn á morgun, fimmtudaginn 26. janúar. Skákdagurinn er haldinn til heiðurs Friðrik Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga, en Friðrik verður 77 ára þennan dag og tekur virkan þátt í hátíðahöldum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skáksambandi Íslands. Til að heiðra Friðrik mun forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, halda móttöku á Bessastöðum. Á meðal annarra gesta verða þau börn sem í febrúar tefla fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti barna og mun Friðrik tefla við Nansý Davíðsdóttur, 10 ára, sem er nýkrýndur Íslandsmeistari barna, fyrst stúlkna á Íslandi.

Að Skákdeginum standa Skáksamband Íslands, Skákakademía Reykjavíkur, Skákskóli Íslands og taflfélög um allt land, í samvinnu við skóla, íþróttafélög, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga.

Markmiðið er að heiðra Friðrik Ólafsson, fyrir einstakt framlag til samfélags okkar í heild og skákarinnar sérstaklega, jafnframt því að sýna þá grósku sem er í íslensku skáklífi um allt land.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?