ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Ísland lauk keppni með jafntefli gegn Frakklandi

Ungu strákarnir sýndu hvað í þeim býr

Luc Abalo sækir að marki Íslands. Myndir Reuters

Róbert Gunnarsson inn af línunni.

Guðjón Valur var markahæstur í dag.

Vignir tekur á línumanninum sterka, Cédric Sorhaindo.

Abalo svífur inn.

Þórir Ólafsson í leiknum í dag.

Guðmundur tók á því á hliðarlínunni.

Guðjón Valur fagnar einu marka sinna.

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:35 › 25. janúar 2012
  • Róbert Gunnarsson inn af línunni.

    Róbert Gunnarsson inn af línunni.Myndir Reuters

  • Guðjón Valur var markahæstur í dag.

    Guðjón Valur var markahæstur í dag.Myndir Reuters

Fara í myndagallerý →

Ísland lauk keppni á EM í handbolta með því að gera jafntefli gegn Frakklandi, 29-29. Afskaplega lítið var undir í leiknum og bar hann þess merki framan ef en Frakkarnir virtust hreinlega ekki nenna að spila fyrri hálfleik. Annað var uppi á teningnum í seinni hálfleik þar sem heims, Evrópu- og Ólympíumeistararnir tóku sig taki.

Ísland byrjaði fyrri hálfleikinn vel og keyrði yfir andlausa Frakkana. Ísland var komið í 7-3 áður en níu mínútur vornu liðnar og var allt að ganga upp. Sóknarleikurinn snarpur, vörnin fín og markvarslan frábær. Björgvin Páll var með yfir fimmtíu prósenta markvörslu í fyrri hálfleik sem er vægast sagt gott.

Frakkarnir vöknuðu þó aðeins undir lok fyrri hálfleiks en þar fór fremstur William Accambray sem skoraði fjögur mörk á lokakaflanum. Frakkar skoruðu síðasta markið í fyrri hálfleik um leið og flautið kom, staðan 15-13.

Hálfleiksræða Claude Onesta, þjálfara Frakklands, hefur verið bönnuð innan átján því Frakkarnir mættu með mun betra hugarfar í seinni hálfleik og skiptu upp um nokkra gíra. Þá eðlilega voru heims, Evrópu- og Ólympíumeistararnir erfiðir viðureignar, ekki síst þegar nánast öll skot þeirra steinlágu í netinu.

Frakkar voru búnir að snúa taflinu sér í hag og komir í þriggja marka forystu, 27-24, þegar tíu mínútur voru eftir. Skömmu áður kom hinn efnilegi markvörður Aron Rafn Eðvarsson inn á í sínum fyrsta leik á stórmóti. Aron lét strax að sér kveða en miklar vonir eru bundnar við þennan strák.

Síðustu tíu mínúturnar voru langskemmtilegasti kafli leiksins þar sem bæði lið sóttust virkilega eftir sigrinum. Með mikilli baráttu vann Ísland upp þriggja marka muninn og þegar tvær mínútur voru eftir voru liðin jöfn, 28-28, en þar hjálpaði fín markvarsla Arons Rafns.

Þá munaði einnig um innkomu leikstjórnandans Ólafs Bjarka Ragnarssonar sem var ákveðinn í að standa sig. Hann stýrði leiknum vel eins og hann hefur gert á mótinu og skoraði tvö góð mörk. Ungu strákarnir hafa virkilega staðið sig á mótinu en Rúnar Kárason átti aftur stórleik í dag og skoraði fjögur góð mörk.

Frakkar skoruðu þegar mínúta var eftir, 29-28, en Þórir Ólafsson jafnaði í næstu sókn Íslands úr vítakasti, 29-29. Frakkar fóru í sókn og tóku leikhlé þegar 13 sekúndur voru eftir. Þeir fengu tækifæri til að skora sigurmarkið en Luc Abalo náði ekki að koma lokaskotinu frá sér áður en tíminn var búinn. Jafntefli því niðurstaðan, 29-29.

Vonbrigðin eru nokkur á mótinu en það verður þó að gera sér grein fyrir að liðið var án Ólafs Stefánssonar og Snorra Steins auk þess sem Alexander meiddist á mótinu og Ingimundur Ingimundarson gat ekki beitt sér að fullu.

Það sem liðið tekur með sér úr mótinu er þó frammistaða ungu strákanna og þeirra sem minna hafa fengið að spila á undanförnum mótum. Rúnar Kárason, Ólafur Bjarki, Kári Kristján Kristjánsson og Aron Rafn Eðvarðsson eru framtíðarmenn.

Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 5/1, Róbert Gunnarsson 4, Aron Pálmarsson 4, Rúnar Kárason 4, Þórir Ólafsson 4/2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 3, Arnór Atlason 2, Ólafur Bjarki Ragnarsson 2, Vignir Svavarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 17/2, Aron Rafn Eðvarsson 2.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?