Ísland tapaði fyrir Spáni, 31-26, á EM í handbolta í dag. Hinn fjarlægi draumur Íslands um að komast í undanúrslitin er því úr sögunni en sigur Spánverja gæti verið vatn á myllu Íslands.
Fyrri hálfleikurinn byrjaði hræðilega og komust Spánverjar fljótt í forustu, 4-1. Í fyrsta skipti á mótinu var það sóknarleikurinn sem brást illilega en Ísland skoraði ekki nema eitt mark á fyrstu sjö mínútunum og tvö á fyrstu ellefu. Þá var Ísland komið fimm mörkum undir, 7-2.
Það gekk afar fátt í sóknarleiknum, langskotin voru döpur, ekkert gekk að finna Róbert inn á línunni og þá var traustasti maður mótsins, Guðjón Valur Sigurðsson, að brenna af dauðafærum. Guðjón skaut meðal annars tvívegis í slánna úr vítakasti.
Fljótlega gerði Guðmundur breytingar á liðinu og setti Kára Kristján Kristjánsson inn á línuna. Þá fór Ísland að finna línuna betur og var Kári duglegur að fiska víti. Nýtingin var þó ekki alveg nægjanlega góð.
Varnarleikurinn í fyrri hálfleik var alls ekki góður en stórskyttur Spánar, sem verður að ganga út í, fengu að rölta frjálsar ferða sinnar inn á sex metrana þar sem auðvelt var fyrir þær að skora. Þó var ekki neitt við Björgvin að sakast sem er svo sannarlega mættur til leiks og varði vel í dag.
Sóknarleikurinn var aftur á móti að gera Spánverjum auðvelt fyrir að skora því tæknifeilar og slakar sóknir íslenska liðsins leiddu að ansi auðveldum mörkum Spánverja. Munurinn var fjögur mörk í hálfleik, 17-13.
Seinni hálfleikurinn byrjaði á versta veg. Spánverjar skoruðu fyrstu tvö mörkin og náðu strax sex marka forustu, 19-13. Þessi munur var einfaldlega of mikill fyrir íslenska liðið. Eltingarleikurinn varð alltaf erfiðara og erfiðari en alltaf þegar íslensku strákarnir voru við það að minnka muninn í þrjú mörk skoruðu Spánverjar tvö í bakið á þeim.
Varnarleikurinn skánaði í seinni hálfleik en færanýting Íslands í sókninni var liðinu of erfið þegar uppi var staðið. Spánverjar eru einfaldlega of sterkir til að gefa svona mikið forskot.
Guðmundur gaf Rúnari Kárasyni stærra hlutverk í leiknum í dag og þakkaði hann fyrir sig með prýðilegum leik. Rúnar skoraði fjögur mörk og sýndi að kannski átti hann að fá tækifæri fyrr. Þá kom Ólafur Guðmundsson, vinstri skytta, inn á undir lokin og minnti á sig.
Spánverjar höfðu á endanum sigur, 31-26, og eru komnir langleiðina í undanúrslit mótsins. Það er gott fyrir Íslendinga því ef Danir, Króatar eða Spánverjar verða Evrópumeistarar lyftist Ísland upp um eitt sæti hvað varðar undankeppni Ólympíuleikana.
Vinni eitt af þessum þremur liðum mótið verður Ísland í riðli með Svíum, Japöunum og Chile í forkeppni Ólympíuleikanna en annars í riðli með tveimur sterkum Evrópuþjóðum og Brasilíu.
Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 6, Rúnar Kárason 4, Kári Kristján Kristjánsson 3, Ásgeir Örn Hallgrímsson 3, Arnór Atlason 3, Aron Pálmarsson 3, Þórir Ólafsson 2, Ólafur Guðmundsson 1, Vignir Svavarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 20/2.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 










Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
