ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Grétar Rafn: Mikil pressa að vera í fallbaráttunni

Mikið í húfi hjá félaginu
Grétar Rafn í baráttu við Antonio Valencia fyrr í mánuðinum.

Grétar Rafn í baráttu við Antonio Valencia fyrr í mánuðinum. Mynd Reuters

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:33 › 24. janúar 2012

„Það er svo rosaleg pressa að vera þarna. Það eru vissulega nokkrir leikmenn í liðinu sem hafa farið í gegnum þetta áður en einnig eru margir sem þekkja ekkert svona baráttu, segir Grétar Rafn Steinsson, leikmaður Bolton, um fallbaráttuna í ensku úrvalsdeildinni í viðtali við DV. Bolton lagði Liverpool um síðastliðna helgi og komst með þeim sigri upp úr fallsætinu í fyrsta skipti í langan tíma. Það sem meira er vann liðið leik á heimavelli sem hefur vantað í vetur.

Það er mikið í húfi fyrir þetta félag þannig að við gátum andað aðeins léttar eftir leikinn. Þessi sigur eykur líka á sjálfstraustið hjá mönnum. Þó svo Liverpool hafi ekkert verið að spila sérstaklega að undanförnu leyfðum við því einfaldlega ekki að spila vel. Svo var gott að vinna á heimavelli en það hefur reynst okkur erfitt í ár. Vanalega hefur heimavöllurinn verið okkar styrkur,“ segir hann.

Nýju mennirnir ekki jafnsterkir
Grétar segir Bolton allt of gott til að vera í fallbaráttunni, það eigi að vera um miðja deild. „Við erum bara að tapa of mörgum leikjum á móti liðum eins og Norwich og Sunderland. Lið sem mér finnst við eiga að vinna. Svo erum við að spila svo mikinn borðtennisleik. Við bara vinnum eða töpum. Það eru jafntefli sem halda liðum í deildinni og við þurfum að ná í fleiri svoleiðis. En ég vona nú innilega að þetta fari að batna hjá okkur,“ segir Grétar og segir eina helstu ástæðu fyrir gengi liðsins að of margir sterkir leikmenn hafi farið frá liðinu.

„Í fyrsta lagi er erfitt að missa Stuart Holden í langvarandi meiðsli og sama má segja um Chung-Young Lee. Svo misstum við líka Daniel Sturridge og Johan Elmander. Þetta er mikil blóðtaka og þeir leikmenn sem hafa verið keyptir í staðinn eru ekki í sama gæðaflokki. Fjárhagsleg staða klúbbsins er það erfið að ekki var hægt að leysa svona margar stöður. Það hefur verið erfitt fyrir þá að móta sig inn en þetta er allt að koma,“ segir Grétar Rafn.

Grétar missti stöðu sína snemma á tímabilinu þegar illa gekk en hann kom aftur inn um jólin og hefur ekki litið um öxl. „Svona er þetta bara. Þegar liðinu gengur illa er breytt til. En ef maður sinnir bara sinni vinnu þá fær maður aftur tækifæri og verður að nýta það. Síðan ég kom inn um jólin hefur gengið betur og vonandi heldur það áfram“ segir Grétar Rafn Steinsson.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?