Balotelli virðist ekki geta einbeitt sér að því að spila fótbolta. Hann kemur sér alltaf í vandræði.
Óþekktaranginn Mario Balotelli hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir ofbeldi gegn Scott Parker leikmanni Tottenham og á yfir höfði sér allt að fjögurra leikja bann.
Balotelli virtist traðka á höfði Parkers í leik liðanna á sunnudag en dómari leiksins virtist ekki sjá atvikið. Balotelli, sem skoraði sigurmark Manchester City í leiknum úr vítaspyrnu í uppbótartíma, hefur þar til á miðvikudag til að bregðast við ákærunni.
Enska knattspyrnusambandið hafði líka til skoðunar atvik þar sem Joleaon Lescott varnarmaður City virtist kýla Younes Kaboul varnarmann Tottenham í andlitið en hann slapp við ákæru.
Balotelli hefur skorað 9 mörk í ensku úrvalsdeildinni fyrir City en fíflalæti hans innan og utan vallar hafa vakið mun meiri athygli á Bretlandi en hæfileikar hans á knattspyrnuvellinum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Moyes vill Björn Bergmann
„Þessi titill fyrir þig Pep“
Blanc hyggst prófa nýja leikmenn gegn Íslandi
Martinez verður Liverpool dýr
Loks töpuðu Skagamenn stigum
