Gylfi Þór hefur byrjað vel með Swansea. Gæti reynst leynivopn liðsins á lokasprettinum Mynd: Reuters
„Gylfi hefur verið frábær. Ég þekki hann vel og hann er að finna sig og ná takti,“ segir Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Swansea, sem þykir hafa verið afar klókur að fá Gylfa Þór Sigurðsson til liðs við sig á láni í janúarglugganum. Rodgers segir að Swansea sé fullkomið lið fyrir íslenska spyrnumeistarann.
Gylfi var einn besti leikmaður Swansea um helgina gegn Sunderland og hefur þegar vakið mikla athygli þrátt fyrir að hafa aðeins komið við sögu í tveimur leikjum.
„Hann hafði ekki leikið mikið áður en hann kom. En það geta allir séð hæfileika hans – hann passar fullkomlega í liðið.“
Rodgers þekkir vel til Gylfa enda var hann í þjálfarateyminu hjá Reading þar sem Gylfi sló í gegn áður en hann hélt til Þýskalands til að leika með Hoffenheim.
„Það eru svona leikmenn sem við viljum fá hingað. Leikmenn sem búa yfir tækni og skilning á leiknum.“
Í frétt BBC um Gylfa er einnig vitnað í Ashley Williams, varnarmann Swansea, sem segir Gylfa hafa verið besta mann liðsins í tapleiknum gegn Sunderland.
Þar er einnig rætt við Gylfa sem hrósar liðsfélögum sínum í hástert og segir auðvelt að ganga til liðs við félag þar sem góðir leikmenn eru til staðar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Moyes vill Björn Bergmann
„Þessi titill fyrir þig Pep“
Blanc hyggst prófa nýja leikmenn gegn Íslandi
Martinez verður Liverpool dýr
Loks töpuðu Skagamenn stigum
