ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Richards: Bale er bestur

Toppar Robben að mati varnarmanns City
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:21 › 23. janúar 2012
Richards og Bale berjast.

Richards og Bale berjast. Mynd: Reuters

„Gareth Bale er besti kantmaður sem ég hef leikið gegn,“ skrifar Micah Richards, bakvörður Manchester City, á Twitter-síðu sína í dag.

Richards og Bale mættust í stórleik Tottenham og City í ensku úrvalsdeildinni í gær þar sem City stal sigrinum á lokasekúndum leiksins með marki Mario Balotelli úr vítaspyrnu og voru lokatölur 2-3.

Bale skoraði fallegasta mark leiksins þegar hann skrúfaði boltann upp í vinkilinn en velski vængmaðurinn hefur verið óstöðvandi með Tottenham að undanförnu. Sem hægri bakvörður City þá tókst Richards að halda aðeins aftur af Bale sem ekki var jafn áberandi og oft áður gegn sterkri vörn City.

En Richards er greinlega mikill aðdáandi Bale sem hann segir betri en Arjen Robben, vængmann Bayern Munich sem var augljóslega erfiðasti andstæðingur varnartröllsins þar áður.

„Ég hélt hann gæti ekki toppað Robben! Þvílíkur náungi.“

Markið sem Bale skoraði í gær má sjá hér fyrir neðan:

szólj hozzá: Man City 2-2 Tottenham



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?