ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 8m/s S

Sjóðheitir Ungverjar áttu ekkert í íslenska varnarmúrinn

Strákarnir okkar vaknaðir til lífsins í Serbíu

Strákarnir fögnuðu verðskulduðum sigri. Mynd Reuters

Þórir Ólafsson nýtti færin sín vel.

Björgvin Páll er mættur til leiks.

Guðjón Valur sterkur í vörninni.

Ingimundur með Ungverja í hrömmum sínum.

Björgvin Páll ver.

Guðmundur æstur á hliðarlínunni.

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:41 › 22. janúar 2012
  • Þórir Ólafsson nýtti færin sín vel.

    Þórir Ólafsson nýtti færin sín vel.Mynd Reuters

  • Björgvin Páll er mættur til leiks.

    Björgvin Páll er mættur til leiks.Mynd Reuters

Fara í myndagallerý →

Strákarnir okkar eru heldur betur vaknaðir til lífsins á EM í Serbíu en þeir unnu sjóðheitt lið Ungverja auðveldlega, 27-21, í fyrsta leik Íslands í milliriðli í dag. Varnarleikurinn sem hefur verið hræðilegur á mótinu var upp á sitt besta í dag og áttu Ungverjar engin svör.

Það var ljóst alveg frá byrjun að strákarnir okkar væru ekki hættir og ætluðu að klára þetta mót með sóma. Íslenska geðveikin sem þeir leita svo oft í var til staðar, vörnin hreyfanleg og baráttan algjör.

Björgvin Páll Gústavsson setti tóninn strax í byrjun leiks en hann var búinn að verja fjögur skot áður en fjórar mínútur voru liðnar. Hann þarf ekki að biðjast afsökunar á einu né neinu eftir þennan leik.

Sóknarleikurinn gekk smurt að vanda með Arnór Atlason í fyrirrúmi. Arnór fór gjörsamlega hamförum í fyrri hálfleik. Hann skoraði, gaf stoðsendingar og varðist vel.

Þegar fyrri hálfleikurinn var búinn hafði Ísland fjögurra marka forskot, 14-10, og hinir sjóðheitu Ungverjar vissu ekki sitt rjúkandi ráð.

Í seinni hálfleik breyttist ekkert. Íslenska vörnin var áfram upp á sitt besta með Sverre og Vignir í fantaformi fyrir miðju hennar. Fótavinnan var til fyrirmyndar og hjálparvörnin frábær. Þetta skilaði líka mikið af auðveldum mörkum úr hraðaupphlaupum.

Guðmundur Guðmundsson gaf Ólafi Bjarka Ragnarssyni stærra hlutverk en áður í leiknum og komst HK-ingurinn vel frá sínu. Hann brenndi af einu dauðafæri en skoraði gott mark og stýrði sóknarleiknum vel þegar hann var inn á.

Þá stimplaði Rúnar Kárason sig einnig inn á mótið með alvöru sleggju í slánna og inn.

Ungverjar náðu mest að minnka muninn í fjögur mörk undir lokin, 23-19, en þá keyrðu strákarnir sig aftur í gang og unnu sex marka sigur, 27-21.

Strákarnir okkar svöruðu svo sannarlega kallinu og hreinlega völtuðu yfir Ungverja sem unnu meðal annars Frakka í riðlakeppninni. Þeir sýndu að þeir geta þetta alveg og þegar þeir eru með bakið alveg upp við vegginn eru þeir vanalega bestir.

Vignir Svavarsson var gjörsamlega frábær í vörninni og Björgvin Páll eins og hann á að sér í markinu. Arnór Atlason var frábær í sóknini en markaskorið dreifðist vel í dag.

Mörk Íslands: Guðjón valur Sigurðsson 5/2, Arnór Atlason 5, Þórir Ólafsson 4, Róbert Gunnarsson 4, Vignir Svavarsson 3, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2, Aron Pálmarsson 2, Ólafur Bjarki Ragnarsson 1, , Rúnar Kárason 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13/2.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?