ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Hreiðar Levy og Oddur fara heim

Guðmundur gerir breytingar á landsliðinu
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:22 › 21. janúar 2012
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska liðsins í handknattleik, hefur gert tvær breytingar á landsliðshópnum fyrir keppni í milliriðlum á Evrópumótinu í Serbíu og fara þeir Oddur Grétarsson og Hreiðar Levy Guðmundsson heim og í stað þeirra koma Rúnar Kárason og markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson inn í þeirra stað. Þetta ef fyrsta stórmót þeirra Rúnars og Arons Rafns með landsliðinu. Íslenska liðið fer til Novi Sad frá Vrsac í dag þar sem milliriðill tvö verður leikinn en Ísland mætir þar Ungverjum, Spánverjum og Frökkum. Fyrsti leikur liðsins er gegn Ungverjum á morgun.
RÚV greinir frá.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?