„Enn ein andvöku nóttin á EM,“ skrifar markvörður íslenska landsliðsins í handbolta, Björgvin Páll Gústvasson, sem fékk á sig mikla gagnrýni í gærkvöldi eftir leikinn við Slóvena. Björgvin fann sig í gær knúinn til að biðjast afsökunar eftir leikinn, en hann og íslenska landsliðið áttu slæman leik í gær og fara því stigalausir í milliriðið Evrópumeistaramótsins í handbolta.
„Þessir síðustu klukkutímar eftir leik hafa verið þeir erfiðustu á mínum handboltaferli og hef fengið mikla gagnrýni úr ýmsum áttum og hef gagnrýnt sjálfan mig persónulega mjög harkalega,“ skrifar hann og segist vilja deila þessu á bloggsíðu sinni þar sem hann hafi ekki eiginkonu sína hjá sér til að ræða við.
Vill gera fólk stolt
Björgvin segist vera afar stoltur af stöðu sinni innan landsliðsins, hann hafi barist eins og ljón fyrir henni og fái alltaf gæsahúð þegar hann heyri íslenska þjóðsönginn. „Mitt aðal markmið á hverju stórmóti er að gera fjölskyldu, vini og þjóðina stolta af mér og landsliðinu. Þjóðarstoltið er mjög ríkt í mér og er ég stoltur af því að vera íslendingur og það er besta tilfinning í heiminum að vita af því að þegar ég ver eða við vinnum að það sé að gleðja einhvern á Klakanum okkar góða.“
Vill athyglina til að hjálpa öðrum
Björgvin hefur verið áberandi í fjölmiðlum og segist sjálfur elska athyglina. Hann segir að ástæðan fyrir því að hann vilji vera „frægur“sé sú að þannig geti hann látið gott af sér leiða og og skrifar: „Með því að vera “frægur” og góður íþróttamaður get ég hjálpað einstaklingum sem að áttu við svipuð vandamál að stríða og ég þegar ég var ungur, ég get hjálpað öðrum íþróttamönnum að ná lengra með því að gefa þeim góð ráð og ég get glatt þá sem eiga um sárt að binda eða eru veikir með því að gefa þeim áritaðar landsliðstreyjur eða styrkt með fjármagni úr mínu fyrirtæki svo að dæmi séu tekin.“
Gefst ekki upp
Björgvin segist ekki vera að gefast upp. Hann ætli að gera sitt besta áfram til að gleðja þjóðina og hafa meira gaman af því að spila. Hann segir að leikgleðina hafi skort hjá sér og að það vanti að hann njóti þess að vera á vellinum í stað þess að hafa áhyggjur af því hvernig land og þjóð bregst við frammistöðu liðsins:
„Ég er ekki að fara að gefast upp! Það þarf ekkert að vera að ég verji 20 skot í næsta leik og við vinnum næstu 5 leiki og verðum Evrópumeistarar… en… ég ætla allavega að að halda áfram að gera mitt besta reyna að gleðja þjóðina og hafa meira gaman af því að vera inná vellinum. Það sem að mig hefur vantað til þessa er líklega leikgleðin og að ég sé að njóta þess að standa inná vellinum heldur en að vera að stressa mig á því að heil þjóð sé að horfa og að ég sé að bregðast henni og strákunum í liðinu. Ég ætla að byrja að njóta leiksins og brosa meira… fyrir mig, fyrir strákana, fyrir Ísland!“
Að lokum skrifar Björgin
„Ykkar orð skipta máli og vonandi að þjóðin sé ekki búin að gefast upp á mér og okkur strákunum í landsliðinu... Áfram Ísland.“
Grein Björgvins Páls má lesa hér:
Andvökunótt á EM



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
