Ísland tapaði gegn Slóveníu, 34-32, á EM í Serbíu. Minnstu munaði að Ísland væri endanlega úr leik því fjórum mörkum munaði þegar mínúta var eftir en Ísland skoraði tvö mörk á síðustu mínútunni og kemst áfram í milliriðil svo lengi sem Króatía vinnur Noreg í kvöld.
Fyrri hálfleikurinn var jafn og spennandi til að byrja með. Ísland komst yfir alveg í byrjun leiksins en Slóvenar tóku snemma forystuna og héldu út fyrri hálfleikinn.
Þegar 20 mínútur voru búnar af leiknum munaði aðeins einu marki, 10-11, en þá fóru leiðir að skilja. Síðustu tíu mínútur fyrri hálfleiks skoruðu Slóvenar sex mörk á móti tveimur hjá Íslandi og Slóvenar leiddu í hálfleik, 17-13.
Það var margt að í fyrri hálfleiknum hlutir sem áttu eftir að vera í ólagi allan leikinn. Varnarleikurinn var aftur hreinasta hörmung og markvarslan enginn.
Enn og aftur var Björgvin Páll Gústavsson tekinn af velli í fyrri hálfleik en hann hefur ekki verið svipur hjá sjón. Hreiðar Levy hefur svo gert lítið til að bæta upp markvörslu íslenska liðsins.
Sóknarleikurinn gekk heldur ekki jafnsmurt og sérstaklega illa gekk að finna Róbert Gunnarsson inn á línunni. Það var augljóst að Slóvenar voru búnir að horfa vel á Róbert í leiknum gegn Noregi því hann komst hvorki lönd né strönd.
Þá voru tæknifeilar Íslands allt of margir og voru strákarnir oft hreinlega að rétta Slóvenum boltann með slæmum sendingum. Einnig hjálpaði ekki til að þýsku dómararnir létu þennan hálfgerða heimavöll Slóvena ná til sín og fórnuðu Íslendingarnir oft höndum yfir furðulegum ákvörðunum þeirra.
Ekkert gekk að minnka muninn í seinni hálfleik en hann var nær alltaf fimm mörk. Alltaf þegar Ísland var búið að minnka muninn í fjögur mörk mistókst að minnka muninn enn frekar og á móti skoruðu Slóvenar í bakið á íslenska liðinu.
Róbert Gunnarsson var tekinn af velli um miðjan fyrri hálfleikinn og inn kom Kári Kristján Kristjánsson í von um að það myndi aðeins losna um á línunni. Það gekk upp og skoraði hann þrjú mörk en brenndi einnig af einu dauðafæri.
Þegar fimm mínútur voru eftir munaði fjórum mörkum, 32-28, en fjögurra marka sigur Slóvena var alltaf að fara senda Ísland heim.
Útlitið var enn dekkra því munurinn var enn fjögur mörk, 34-30, þegar ein mínúta var eftir. En strákarnir björguðu sér fyrir horn með því að skora tvö mörk á síðustu mínútunni, 34-32.
Það þýðir að Ísland á möguleika að komast áfram á meðan Norðmenn taka ekki upp á því að fá stig gegn Króatíu í kvöld.
Slóvenar gáfu þó Íslandi þessi tvö mörk undir lokin og reyndu ekki að verjast þeim. Þeir treysta á að Króatía vinni Noreg í kvöld og þá taka þeir með sér tvö stig í milliriðlinn fyrir sigurinn á Íslandi. Afskaplega óheiðarlegt og má reikna með að Norðmenn séu brjálaðir.
En sama þó mörkin hafi verið gefins er Ísland áfram svo lengi sem Króatar vinni Noreg. Því heldur íslenska þjóðin með Ivano Balic og strákunum í króatíska landsliðinu í kvöld.
Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 8/3, Arnór Atlason 5, Alexander Petersson 4, Þórir Ólafsson 3, Aron Pálmarsson 3, Sverre Jakobsson 3, Kári Kristján Kristjánsson 3, Róbert Gunnarsson 1, Vignir Svavarsson.
Varin skot Björgvin Páll Gústavsson 7, Hreiðar Levy Guðmundsson 1.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
