Íslenska landsliðið fagnar hér sigri á Norðmönnum á dögunum. Norðmenn sitja eftir með sárt ennið eftir hagræðingu Slóvena í dag. Mynd: Reuters
„Hins vegar hefur þessi leikur verið leikinn margoft áður á stórmótum og eru Íslendingar engin undantekning,“ segir í athyglisverðri frétt á vef RÚV í kvöld þar sem fjallað er um hinar umdeildu lokamínútur í leik Íslands og Slóveníu á EM í handbolta í kvöld.
Norðmenn sitja eftir með sárt ennið í D-riðli eftir að Slóvenar leyfðu Íslendingum að skora tvö mörk undir lok leiksins. Þetta gerðu þeir til að þeir tækju 2 stig með sér inn í milliriðilinn.
Mikið fjaðrafok hefur verið vegna þessarar hagræðingar á úrslitum í kvöld og Norðmenn skiljanlega hundfúlir yfir þessu. En í frétt RÚV er rifjað upp að svona vinnubrögð séu alþekkt á stórmótum í handbolta. Ísland hafi meira að segja gert þetta á HM í Þýskalandi 2007 á kostnað Úkraínu.
Á vef RÚV segir:
„Á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi 2007 þurfti Ísland að vinna Frakka í lokaleik sínum í riðlakeppninni til að komast áfram í milliriðil. Ísland lék frábærlega í þeim leik og hafði tíu marka forystu að loknum fyrri hálfleik, 18-8. Þegar leið á síðari hálfleikinn áttaði liðsstjórn íslenska liðsins sig á því að ef Ísland ynni Frakka of stórt yrðu Frakkar úr leik og Íslendingar tæku þar að leiðandi stigin tvö fyrir sigurinn á Frökkunum í riðlinum ekki með sér í milliriðil. Því var farið að reikna út hvernig best væri að vinna Frakkana og Íslendingar enduðu á því að vinna með 8 marka mun í stað 10 eða 11 marka mun. Þannig fóru Frakkar áfram með Íslendingum á kostnað Úkraínumanna, sem höfðu daginn áður sigrað íslenska liðið. Úkraína sat því eftir, en Ísland fór í milliriðilinn með 2 stig og Frakkar fylgdu íslenska liðinu þangað en án stiga.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
