„Vil biðja þjóðina afsökunar,“ skrifar íslenski landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson á Facebook-síðu sína í kvöld. Björgvin Páll hefur átt afar erfitt uppdráttar á EM í handbolta og talsvert frá sínu besta milli stanganna í þessu stórmóti.
Hefur hann mátt þola gagnrýni vegna þessa. Markvarslan og vörnin var slöpp í leiknum gegn Slóvenum í kvöld sem tapaðist 34-32 eftir að Íslendingar höfðu fengið gefins tvö mörk undir lok leiks. Króatar lögðu svo Norðmenn í lokaleik D-riðils sem þýðir að Slóvenar drógu Íslendinga með sér í milliriðil á kostnað Norðmanna sem eru ALVEG brjálaðir útaf bolabrögðunum.
Björgvin Páll axlar hins vegar ábyrgð á döprum leik sínum í kvöld og vitnar í fleyg orð körfuknattleiksgoðsagnarinnar Michael Jordan í lok færslu sinnar:
„I‘ve failed over and over and over again in my life and that is why I succeed.“
Sem lauslega þýtt myndi útleggjast: „Mér hefur mistekist aftur og aftur í lífinu og þess vegna hef ég náð árangri.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
