Gestgjafar EM í handbolta, Serbar, hafa byrjað frábærlega á mótinu og unnið fyrstu tvo leiki sína gegn liðum sem eiga teljast betri en þeir, Pólverjum og Dönum.
Serbar eru nú þegar komnir í milliriðlana og geta farið þangað með fullt hús, fjögur stig, vinni þeir Slóvaka í kvöld sem ætti að teljast tiltölulega auðvelt verkefni.
Mikið handboltaæði er í Serbíu sem hófst fyrir alvöru eftir sigurinn á Pólverjum í fyrsta leik. Ríflega tvær milljónir Serba eða ríflega 31 prósent þjóðarinnar horfði á leikinn gegn Póllandi og áhorfið jókst á leikinn gegn Dönum.
Enginn handboltaleikur í landinu hefur fengið meira áhorf en leikurinn gegn Dönum frá því að mælingar hófust árið 2002.
Fastlega er búist við því að áhorfstölurnar hækki enn frekar í kvöld þegar Serbía mætir Slóvakíu í lokaleik riðlsins. Þá eru miðar á leikina í milliriðlunum að rjúka út eins og heitar lummur og komast færri að en vilja.
Fremsti íþróttamaður Serbíu, tenniskappinn Novak Djokovic, er spenntur yfir árangri liðsins. Hann getur þó ekki farið á völlinn þar sem er staddur í Ástralíu að verja titil sinn á opna ástralska meistaramótinu, fyrsta risamóti ársins.
Hann sendi þó sínum mönnum hvatningarorð á Twitter: „Góðan daginn fólk. Ég vaknaði í dag og sá að serbneska handboltalandsliðið vann leikinn gegn Dönum á EM sem fer fram í Serbíu þessa dagana. Við erum nú þegar búnir að vinna tvo leiki. Nú setjiði stefnuna á verðlaun, drengir. Vel gert!“
Þetta er aðeins annað Evrópumótið sem Serbía tekur þátt í sem sjálfstæð þjóð en í Austurríki fyrir tveimur árum náði liðið þrettánda sæti. Það aftur á móti komst ekki á EM í Noregi árið 2008.
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá helstu atvikin úr sigri Serba á Dönum en það er fyrsti leikurinn sem tekinn er fyrir.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
