ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Norskur þulur missti sig: Sagði dómurunum að fara til fjandans

„Augljóst víti,“ segir hann.
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:08 › 19. janúar 2012
Robert Hedin, þjálfari Noregs, og Ole Erevik, markvörður, misstu sig á dómarana eftir leikinn.

Robert Hedin, þjálfari Noregs, og Ole Erevik, markvörður, misstu sig á dómarana eftir leikinn.

Norðmenn eru gjörsamlega brjálaðir að hafa ekki fengið víti á lokasekúndum leiksins gegn Íslandi á EM í gær sem strákarnir okkar unnu, 34-32. Í lokasókn Norðmanna snéri Bjarte Myrhol sér inn af línunni í baráttu við Vigni Svavarsson sem sleppti Bjarte og Björgvin Páll varði.

Danskir dómarar leiksins, Per Olesen og Lars Ejby Pedersen, dæmdu ekkert og sögðu þeir í gær í viðtali við norska blaðið VG að þeir væru vissir í sinni sök. „Þaðan sem ég stóð var greinilegt að Myrhol sneri baki í markið. Þar með var þetta aldrei vítakast," sagði Lars Pedersen.

Bloggheimar hafa logað í Noregi vegna atviksins og þá missti sérfræðingur norsku stöðvarinnar TV2, Harald Bredeli, sem sýndi leikinn beint í gærkvöldi sig algjörlega.

„Þetta er víti - Nei, nei, nei! Danir, þetta er víti. Með hvaða liði haldið þið eiginlega,“ öskraði hann eftir að danska dómaraparið dæmdi ekkert á Vigni Svavarsson og gerði þar í raun út um leikinn.

Eftir leikinn missti hann sig svo endanlega. „Þetta er ótrúlegt. Enn og aftur fer allt til helvítis gegn Íslandi. En við gerðum líka mistök. Espen Lie Hansen skaut boltanum frá sér. En Dönsku dómararnir, guð minn góður. Til fjandans með ykkur,“ sagði Bredeli sem baðst strax afsökunar á orðbragðinu en dró ekkert til baka.

„Afsakið orðbragðið en það var tekið af okkur augljóst víti sem hefði getað tryggt okkur sæti í milliriðlum. Þetta er skandall - dómaraskandall. Þetta var augljóst víti,“ sagði hann.

Eftir útsendinguna baðst hann svo afsökunar á vef TV2. „Maður getur ekki sagt hvað sem er,“ sagði Bredeli en breytti ekki um skoðun.

Hér má sjá myndband af lokamínútunum og Bredeli að missa sig.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?