Aganefnd evrópska handknattleikssambandsins hefur vísað á bug mótmælum sem Makedónar lögðu fram eftir tapleik þeirra, 24-23, gegn Þjóðverjum á EM í gær.
Makedónar vildu meina að síðasta skot leiksins, sem stórskyttan Kiril Lazarov átti þegar 13 sekúndur voru eftir, hafi farið inn fyrir línuna. Boltinn fór í slánna, þaðan í gólfið og svo út úr markinu.
Íslenska dómaraparið Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson dæmdu leikinn mjög vel en það var Hlynur sem stóð við markið og mat það svo að boltinn hafi ekki farið inn fyrir línuna.
Aganefnd EHF hefur farið yfir öll atriði leiksins og skoðað myndbandsupptöku af honum. Aganefndin bendir á að dómurinn sé alfarið í höndum dómaranna inn á vellinum og geti Makedónar því ekki mótmælt einu né neinu.
Úrslitin munu því standa en makedónska handknattleikssambandið hefur til klukkan sex í dag að áfrýja en það mun ekki breyta neinu um úrskurð EHF.
Myndband af atvikinu má sjá hér að ofan en atburðarrásin hefst á 7:30 þar sem Uwe Gensheimer skorar sigurmark Þjóðverja. Í framhaldi má sjá skotið frá Lazarov en það er enginn möguleiki að sjá hvort boltinn sé inni eða ekki á þessu myndbandi.
Það eitt sá Hlynur Leifsson sem mat það svo að boltinn væri ekki inni.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
