Ísland vann frábæran en torsóttan sigur á Noregi, 34-32, á EM í handbolta. Íslenska liðið var komið með bakið upp við vegg í seinni hálfleik þar sem Norðmenn náðu mest fjögurra marga forskoti. Með mikilli baráttu náði þó Ísland að knýja fram sigur.
Mikil spenna var í fyrri hálfleik þar sem jafnt var næstum því á öllum tölum og liðin skiptust á að hafa forustu. Sóknarleikurinn gekk mjög vel og sérstaklega vel gekk að finna Róbert Gunnarsson inn á línunni sem borgaði heldur betur fyrir klúðrin gegn Króatíu og fór á kostum gegn Noregi.
Varnarleikurinn var aftur á móti hræðilegur og þar af leiðandi markvarslan engin. Ísland fékk á sig 20 mörk í fyrri hálfleik og var undir með tveimur mörkum, 20-18, eftir fyrri hálfleikinn. Ekki boðlegar tölur.
Erfiðastur viðureignar var skyttan Erlend Mamelund sem skoraði sjö mörk í fyrri hálfleik úr sjö skotum. Var hann farinn að minna á Kjetil Strand í leiknum fræga 2006 en honum héldu gjörsamlega engin bönd.
Ísland byrjaði seinni hálfleikinn vel og jafnaði metin með fyrstu tveimur mörkum hálfleiksins en þá skildu leiðir í fyrsta skipti í leiknum. Norðmenn spiluðu sterkan varnarleik og héldu áfram að skora gegn slakri vörn Ísland, skoruðu fimm mörk gegn einu og breyttu stöðunni í 25-21.
Eftir það varð róðurinn þungur fyrir íslenska liðið sem sýndi þó mikinn karakter og minnkaði muninn strax aftur í eitt mark, 25-24. En þá fór sóknarleikurinn að hiksta hjá strákunum okkar og ekki hjálpaði til að Ísland var að fá á sig ódýra tveggja mínútna brottrekstra. Norðmenn náðu aftur þriggja marka forystu, 30-27.
Strákarnir okkar eru þó þekktir fyrir allt annað en að gefast upp og með mikilli baráttu og betri varnarleik sem skilaði auðveldum mörkum úr hraðaupphlaupum skoruðu þeir fjögur mörk gegn engu og komust yfir í fyrsta skipti í seinni hálfleik, 31-30, þegar sex mínútur voru eftir af leiknum.
Spennan var ekki minni á lokakaflanum því þegar tvær mínútur voru eftir stóð jafnt, 32-32, eftir að Guðjón Valur hafði klúðrað úr horninu og Norðmenn jafnað í næstu sókn. Þegar þarna var komið við sögu átti hvorugt liðið eftir leikhlé til að ráða ráðum sínum.
Alexander Petersson tók skotið þegar rúm mínúta var eftir en norski markvörðurinn Ole Erevik sem varði þrjú skot í röð á lokakaflanum varði vel frá Alexander. Norðmenn fóru í sókn og tóku slakt skot sem Björgvin varði. Ísland fékk hraðaupphlaup sem Vignir Svavarsson skoraði úr, 33-32.
Norðmenn fengu þó tækifæri til að jafna metin og gáfu inn á línu þar sem Bjarte Myrhol snéri af sér varnarmann Íslands en náði aðeins slöku skoti. Það var svo við hæfi að Róbert Gunnarsson tryggði sigurinn í næstu sókn, 34-32.
Norðmenn voru algjörlega brjálaðir að Myrhol hefði ekki fengið víti þegar hann braust í gegn í lokasókninni en dönsku dómararnir dæmdu ekkert. Robert Hedin, þjálfari Norðmanna, hnakkreifst við dómarana eftir leik en úrslitin stóðu og mikilvægur íslenskur sigur í höfn.
Maður leiksins var Róbert Gunnarsson sem bar af og skoraði níu mörk úr níu skotum auk þess að fiska vítaköst og blokka vel. Hann svaraði heldur betur gagnrýnisröddunum eftir fyrsta leikinn.
Varnarleikurinn var hörmung framan af og markvarslan slök en það lagaðist í seinni hálfleik þegar virkilega á reyndi. Liðið þarf þó að spila heilsteyptari leik gegn Slóvenum til að innbyrða sigur þar. Baráttan, krafturinn og dugnaðurinn var þó til fyrirmyndar en íslensku strákarnir gáfust aldrei upp.
Guðmundur Guðmundsson hafði ekki tapað fyrir Noregi eftir endurkomu sína sem landsliðsþjálfari og það breyttist ekkert í dag.
Mörk Íslands: Róbert Gunnarsson 9, Guðjón Valur Sigurðsson 8/4, Alexander Petersson 5, Aron Pálmarsson 5, Þórir Ólafsson 3, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2, Arnór Atlason 1, Vignir Svavarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 7, Hreiðar Levy Guðmundsson 4.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 










Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
