Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, var eðlilega hæstánægður með sigurleikinn gegn Noregi, 34-32. Hann segir sóknarleikinn hafa verið frábæran hjá liðinu.
,,Við spiluðum frábæran sóknarleik megnið af leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik," sagði Guðmundur við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson í viðtali á RÚV. ,,Síðan komu misgóðir kaflar í seinni hálfleik í sókninni," sagði hann en varnarleikurinn var ekki jafngóður.
,,Varnarleikurinn var mjög slakur í fyrri hálfleik en að sama skapi stórkostlegur í síðari hálfleik. Þar fáum við ekki á okkur nema tólf mörk. Það gerði í raun út um leikinn," sagði Guðmundur.
Hann er ánægður með seigluna í strákunum. ,,Það var stórkostlegur karakter hjá liðinu að halda svona út og þeir eiga skilið mikið hrós fyrir að gefast ekki upp. Við misstum aldrei trúna og það var aðdáunarvert að sjá strákana svona yfirvegaða og rólega í erfiðum stöðum," sagði Guðmundur Guðmundsson.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
