ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Aron: Náðum upp stemningu

Róbert segir ekki hafa verið spilað upp á sig
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:00 › 18. janúar 2012
Aron skoraði fimm mörk gegn Noregi.

Aron skoraði fimm mörk gegn Noregi. Mynd Reuters

,,Sem betur fer náðum við að klára þetta," sagði Aron Pálmarsson, skytta íslenska landsliðsins, í viðtali við RÚV, um sigurleikinn gegn Noregi, 34-32, á EM í handbolta.

,,Við vorum að finna okkur vel sóknarlega," sagði Aron við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsso, íþróttafréttamann á RÚV. ,,Varnarleikurinn var aftur á móti mjög lélegur í fyrri hálfleik og því var engin markvarsla. Við löguðum það í seinni hálfleik," sagði Aron en hvað gerðu strákarnir til að bæta vörnina í seinni hálfleik?

,,Við náðum bara upp meiri talanda og stemningu. Við hættum líka að missa mennina inn fyrir okkur og þannig náðum við að stoppa þá betur," sagði Aron Pálmarsson.

Róbert Gunnarsson fór á kostum í leiknum og skoraði níu mörk úr níu skotum en hann skoraði ekkert mark úr fjórum skotum gegn Króatíu í fyrsta leik.

,,Fannst þér ég lélegur gegn Króatíu," spurði Róbert. ,,Já, ég var lélegur þar en þetta gekk upp í dag. Það var ekkert lagt upp með að spila upp á mig. Það eru bara klókir strákar í þessu liði og þetta spilaðist svona í dag. Þegar það er að losna um mig inn á línunni þá er um að gera nýta það. Svo þarf ég bara að klára færin," sagði Róbert Gunnarsson við RÚV.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?