Ísland tapaði fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í handbolta gegn Króötum, 31-29. Íslenska liðið barðist hetjulega og spilaði á köflum mjög vel en ólseigt lið Króata hafði sigur á lokametrunum og það ekki í fyrsta skiptið.
Leikurinn var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu en Ísland leiddi nær allan leikinn frá því að Króatar höfðu yfir, 5-4. Í fyrri hálfleik gekk sóknarleikurinn vel og gerðu íslensku strákarnir vel í að finna skot gegn sterkri vörn Króata.
Til að byrja með var lítil sem engin markvarsla en Björgvin Páll Gústavsson var veikur fyrir leikinn og fékk grænt ljós til að spila á leikdag. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður kviknaði þó á Björgvini sem fór að verja mikilvæg skot.
Það sem vantaði einna helst allan leikinn voru mörk af línu en bæði Róbert Gunnarsson og Kári Kristján Kristjánsson brenndu af nokkrum dauðafærum. Þeir aftur á móti spiluðu vel, sérstaklega Róbert sem fiskaði víti og blokkaði vel fyrir skytturnar.
Mest náði Ísland þriggja marka forskoti í fyrri hálfleik en munurinn var eitt mark þegar hálfleiksflautan gólaði, 15-14.
Spennan var ekki minni í seinni hálfleik þar sem íslensku strákarnir hengu á forskotinu með ráðum og dáðum. Baráttan var til fyrirmyndar þó Króatar fengu fjölmörg tækifæri til að komast yfir.
Á síðustu mínútum leiksins skiptust liðin á að láta reka sig út af en einu sinni fuku tveir Íslendingar af velli nánast á sama tíma. Gríðarleg barátta og klókindi liðsins varð þó til þess að Ísland hélt jöfnu þann kafla, 1-1, og hélt forskotinu í leiknum.
Þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir af leiknum komust Króatar í fyrsta skipti yfir frá því í stöðunni 5-4, en staðan var þá orðin, 29-28. Hafði Aron Pálmarsson klúðrað erfiðu skoti rétt áður en það gerðist og lét hann einnig verja frá sér í næstu sókn.
Voru Króatar því með boltann þegar 90 sekúndur voru eftir og einu marki yfir. Ivano Balic nýtti þá alla sína reynslu og fiskaði afskaplega ódýrt víti. Dómarar leiksins höfðu staðið sig frábærlega fram að því en þessi mikilvægi vítadómur var ódýr í meira lagi.
Staðan var þá orðin 30-29 og reyndi Arnór Atlason erfitt skot í næstu sókn sem markvörður Króata varði vel. Brunuðu Króatar í sókn og skoruðu og unnu leikinn með tveimur mörkum, 31-29.
Íslenska liðið barðist og barðist en Króatarnir eru ólseigir og er þetta ekki í fyrsta skiptið sem þeir innbyrða sigur á síðustu metrunum. Strákarnir okkar voru orðnir þreyttir undir lokin og skotin orðin slakari.
Guðjón Valur Sigurðsson var traustur sem eik í leiknum og skoraði átta mörk, þar af fjögur á vítalínunni. Þá voru Arnór Atlason og Alexander Petersson einnig öflugir en skotnýting Arons Pálmarssonar var því miður ekki upp á marga fiska. Hann skoraði þó fimm mörk, nokkur á mikilvægum augnablikum.
Varnarleikurinn var ágætur á köflum og kom Vignir Svavarsson nokkuð sterkur inn í íslenska liðið en Ingimundur Ingimundarson er tæpur og getur ekki beitt sér að fullu allan leikinn. Þá hvarf Þórir Ólafsson ansi snemma eftir tvö góð mörk í upphafi.
Spili íslenska liðið jafnvel gegn Noregi og Slóveníu og það gerði gegn Króatíu verður það illviðráðanlegt. Króatar voru einfaldlega of sterkir þegar á hólminn var komið.
Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 8/4, Arnór Atlason 5, Aron Pálmarsson 5, Alexander Petersson 4, Vignir Svavarsson 2, Þórir Ólafsson 2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 15/1.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
