ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Guðmundur: Getum verið stolt af liðinu

Þjálfarinn sáttur með leikinn en vildi sigur
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:59 › 16. janúar 2012
Guðmundur á fullu á hliðarlínuni í kvöld.

Guðmundur á fullu á hliðarlínuni í kvöld. Mynd Reuters

,,Við misnotuðum of mikið af dauðafærum," sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, í viðtali við Einar Örn Jónsson á RÚV, um fyrsta leik Íslands á EM í Serbíu sem tapaðist, 31-29, gegn Króatíu.

,,Við færðum þeim of mikið af tækifærum til að komast yfir. En Króatar eru með frábært lið heilt yfir. Ég er sáttur með leik liðsins en sársvekktur að hafa ekki fengið að minnsta kosti eitt stig," bætti Guðmundur við.

Þjálfarinn var ánægður með leik strákanna en sagði að þeim vantaði aðeins meiri klókindi til að landa sigrinum undir lokin.

,,Það var kannski farið að gæta aðeins þreytu hjá okkur undir lokin þó við værum að rúlla á liðinu eins og kostur væri. Króatar eru einfaldlega erfiðir við að eiga. Við getum verið stolt af leik liðsins. Það vantaði bara aðeins klókindi undir lokin. Þeir voru að finta okkur upp úr skónum og vegna þess vorum við að láta reka okkur út af og það var dýrt þegar upp var staðið," sagði Guðmundur Guðmundsson í viðtali á RÚV.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?