Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, var ánægður með leik liðsins gegn Króatíu þrátt fyrir tap, 31-29. Eins og þjálfarinn benti Guðjón á að liðið hefði þurft að vera aðeins klókara undir lokin.
,,Króatarnir voru bara aðeins klókari undir lokin. Við erum að spila við frábært lið og lentum í gríðarlegum vandræðum í vörninni. Þeir voru að vinna okkur mikið maður á mann. Undir lokin breyttu þeir sjálfir um vörn en við fáum samt fín færi sem við nýttum ekki," sagði Guðjón Valur í viðtali við Einar Örn Jónsson á RÚV.
Guðjón sagði liðið hafa lagt leikinn vel upp og spilað hann vel. Það hafi bara verið svekkjandi að hafa ekkert fengið út úr leiknum, ekki einu sinni eitt stig. Þessi byrjun mun þó ekki hafa nein áhrif á framhaldið.
,,Auðvitað vildum við fá tvö stig. Við höfum áður byrjað stórmót illa og á mun dramatískari hátt en þetta. Við stöndum þetta tap af okkur. Við munum skoða þennan leik að sjálfsögðu en þetta breytir engu upp á framhaldið," sagði Guðjón Valur við RÚV.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
